24.4.2007 | 10:54
Fundur
Í gær var ég á afar merkilegum fundi ásamt fáeinum félögum mínum frá Hafliðaárunum. Bjössi Birgis hafði fengið þá hugdettu í höfuðið að safna peningum til þess að láta smíða líkan af síðutogaranum Hafliða SI 2 og gefa Síldarminjasafninu á Siglufirði til minningar um þá menn sem á skipinu störfuðu. Þetta var svo sem ekki fyrsti fundurinn okkar, áður höfðum við hist á Aski og slafrað í okkur á meðan við sögðum sögur og svo var aðeins minnst á líkanið. Í gær hittumst við hjá Gunnari Trausta í húsakynnum Merkismanna og enginn matur til að dreifa huganum, utan nokkrir kexpakkar sem einn af félögunum tæmdi samviskusamlega. Líkan, eins og það sem við höfum í huga, er ekkert smáverkefni að smíða. Það verður um 1,5. metra langt og byggt eftir ströngustu kröfum næmra minninga, teikningum sem við höfum aflað okkur frá Sjóminjasafninu í Hull á Englandi og svo auðvitað ljósmyndum. Til stendur að setja upp heimasíðu og þar verða settar inn sögur og upplýsingar um skipið, listi yfir þá menn sem verið hafa á skipinu og fleira. Við vonumst til þess að fá sem flesta til samstarfs við okkur um þetta þjóðþrifamál og að sem flestir taki upp budduna og gefi til verksins fáeinar krónur því þetta gerist ekki án þess að peningar komi við sögu enda gert ráð fyrir að svona líkan kosti allt að 2 milljónum króna.
En þetta er sem sagt að fara af stað og hlakka ég mikið til.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- ESB bannar notkun á BPA í umbúðum um matvæli
- Níu handteknir vegna brunans á skíðahótelinu
- Trump myndi hugnast kaup Musks á TikTok
- Hafa til klukkan 17 til að senda starfsmenn í leyfi
- Heita því að tryggja þjóðaröryggi sitt
- Sakar biskupinn um viðurstyggilegan tón
- Fjórir særðir eftir stunguárás í Tel Aviv
- Náðun stuðningsmanna Trumps vekur ólík viðbrögð
- Skotinn til bana við skyldustörf
- Sársauki okkar er nístandi
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.